Friday, May 18, 2007

 

Pabbi

Í gær var fæðingardagur pabba okkar, fæddur 17.maí 1912, á Melum í Trékyllisvík á Ströndum.Við Didda systir fórum að leiði hans og mömmu í dag.Á milli þeirra liggur systir okkar sem lést tveggja ára gömul, rétt mánuði áður en ég fæddist. Blessuð sé minning þeirra.



Wednesday, May 16, 2007

 

Smá getraun, fyrir "Sporara"?



Hverjir þekkjast á þessari ljósmynd?

Verið var að heiðra þann sem er fyrir miðju í efri röð.Sá ber sama skírnarnafn og gamalþekktur Big Band hljómsveitarstjóri í gamla daga.þeir sem eitthvað þekkja til, geta hent fram nokkrum nöfnum! (Nema Helgi S.,þú veist ekkert um hverja er að ræða!) Spáið í þetta. "Grátmúrinn" getur spreytt sig, líka "Mogensen", Rikki og fleiri.


This page is powered by Blogger. Isn't yours?