Tuesday, January 23, 2007

 

Geir kvartar ekki!

Sá hluta af viðtali við Forsætisráðherran "okkar" í norska sjónvarpinu.Er hann var inntur um mikla uppsveiflu í íslensku efnahagslífi, játaði hann og svo væri óneitanlega og klykkti út með að hann kvartaði allavega ekki! Nei, hann og hans umbjóðendur hafa sannarlega ekki ástæðu til að væla.Svo er það bara spurning um hvað ellilífeyrisþegum, öryrkjum og öðrum þeim sem þurfa að horfa upp á þjóðfélag þar sem misskiptinginn eykst og hin nýríka yfirstétt sem slær um sig með þvílíkum flottræfilshætti, sem aldrei áður hefur sést.Já, Geir getur verið ánægður, þetta er allt eins og það á að vera. Fyrir mér er þetta bara eins og hver annar þjófnaður, þrjótar hafa rænt af okkur þjóðfélagi sem foreldrar minnar kynslóðar byggðu upp af miklu harðfylgi.Síðasta dæmið í dag, Þorgerður Katrín er búinn að leggja hornsteininn að enn einu ráninu.Ríkisútvarpinu brátt komið í hendur einkavina úr röðum frelsis-og frjálshyggjupostula.Sveiattan!

Tuesday, January 16, 2007

 

Gamli Bullworker-inn!


Frétti að Kalli hefði grafið upp gamalt Bullworker-tæki í drasli sem tilheyrði mér.Hvað er það? Ég man fyrst eftir þessu "fitness" fyrirbæri í byrjun áttunda áratugs síðustu aldar! Man ekki hver átti þetta eða keypti í fjölskyldunni, Kalli hélt að Billi hafi átt þetta í upphafi.Fyrir þá sem ekki vita hvaða tól þetta er, þá í stuttu máli er þetta gormur inni í járnhólki sem er pressaður saman í hinum ýmsu stellingum.Sjá meðfylgjandi mynd.Mér finnst að það megi skipa þessu tæki á bekk við t.d.Soda Stream-tæki og hin sívinsælu fótanudds-tæki.

Sunday, January 07, 2007

 

"I´ve started, so I´ll finish".

Magnús Magnússon, föðurbróðir Steina vinar, er látin í Glasgow.Blessuð sé minning hans.Það var heiður að fá að kynnast honum.Minnist þess er við sátum kvöldstund eina, í kjallaranum á Flókagötunni og súptum á Skozkum þjóðardrykk.Minnist hans af mikilli hlýju og votta þér Steini minn og fjölskyldunni, samúð mína.God bless.

http://news.bbc.co.uk/2/hi/uk_news/3561915.stm

Wednesday, January 03, 2007

 

2007.

Hvað er hægt að segja?Þetta árið hlýtur að verða viðburðarsnauðara en undangengið 2006? Maður skyldi ætla það,vonandi.Þetta er orðið ágætt,nú er bara að koma þessu öllu í ró!Er ég þó bara að tala um á persónulegu nótunum.Allt er þetta þó á rétta rólinu í dag.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?