Saturday, April 01, 2006

 

Sigurvíma!

Boltinn á ekki oft erindi hér inn, en nú þykir mér tilefni til! Það kætir mann heldur betur úrslit dagsins. Það var aðdáunarvert að sjá mína menn mæta svo ákveðna til leiks, strax frá fyrstu mínútu! Þar var lagður grunnurinn að öruggum sigri á St.James's Park. Ánægjulegt að sjá hversu sterk miðjan var og sér í lagi varnarleikurinn.Þar stóðu menn vaktina með prýði. Auðséð að menn voru ákveðnir að verja 4. sætið af hörku og áræðni! Einnig var ánægjulegt að sjá erkifjendurna lenda í vandræðum á heimavelli og tapa naumlega fyrir Villa! Maður er í 7unda himni og bíð spenntur eftir næsta leik!

Comments:
Það var ekki fyrr en ég sá dagsetninguna á færslunni að ég gerði mér grein fyrir að þú værir ekki alveg búinn að tapa glórunni!

Við Spursarar getum þó huggað okkur við það að við erum langt fyrir ofan miðju á töflunni. Notaleg tilbreyting það.
 
Jú, verð að viðurkenna mig hafa verið í þokkalegu "kasti" þegar ég gerði þessa færslu!Kv.Sperrier.
 
Post a Comment



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?