Friday, May 19, 2006

 

Júró & fleira.

Jú, undirbúningur stendur sem hæst fyrir Júró-partýið annað kvöld. Þessi mynd var tekinn síðdegis, er aðföng voru að berast í hús. það stefnir í að mæting verði yfir meðallag, flestir hafa staðfest komu sína, matseðilinn liggur fyrir.Mun það vera af nýslátruðu. Meðlætið og viðbitið mun ekki svíkja, ef ég þekki rétt. Undirritaður er búinn að gera ráðstafanir þess efnis að þurfa ekki að mæta á sunnudagsvaktina, skilningsríkur vinnufélagi sá aumur á kallgarminum, ætlar rífa sig upp á sunnudagsmorgni.Reyndar er það svo að honum vantaði skipti og lá þetta því best við höggi. Ekki svo verra að eiga frí, nýta daginn til annars.

Comments:
Góða skemmtun vinur :)
 
Þakka þér,stefni á það!Hafðu það gott.
 
Gummi minn er eitthvad til i thvi sem ad eg hef heyrt ad bakvid finnsku grimurnar voru Lulli sveppi og Pony???

Med kvedju
Helgi
You'll never walk alone
 
It's just a vicious rumor, started by their enemies! Have it good.
 
Post a Comment



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?