Friday, October 20, 2006

 

Sá á fund sem finnur.

Byrjaði vaktina á að fara á starfsmannafund hjá okkur. Mæting var skelfilega léleg og mættu þeir síst sem mest höfðu undir. Nýjir samningar voru til umræðu og sitt sýndist hverjum. Ein tillaga kom fram, um að afmælisframlög yrðu hækkuð úr 600 kall í þúsund.Þótti mér það of stórt stökk og lagði til 800 kr. skyldi nægilegt. Þegar til atkvæða kom, áttaði ég mig á að næsta ár yrði ég f***tugur og lagði þá til að hækkað yrði upp í 1200 kall! Voru gerð þá hróp að mér og sá mig tilneyddan að leggja á flótta.

Comments:
Þú gerðir þó (ó) heiðarlega tilraun. Það mátti reyna. Vona að vel safnist. Hjá okkur var 500 kallinn enn í fullu gildi þegar síðast fréttist.
 
Post a Comment



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?